Fjarvinnuaðstaða á Spáni

Vinnufrí — vinnuaðstaða og sól

Fullbúnar eignir með vinnuaðstöðu á Spánifyrir einstaklinga, fjölskyldur og vinnuhópa.

Eignir

Valdar eignir með vinnuaðstöðu

Augljós ávinningur

Góð upplifun, góð vinnuaðstaða

Vinnu- og einkalífsjafnvægi

Vinnuaðstaða í fallegu umhverfi á meðan þú nýtur frítímans. Minna stress, betra jafnvægi.

Aukin framleiðni

Háhraða internet, stórir skjáir og þægilegir stólar — breytt umhverfi eykur sköpunargáfu.

Fjölskylduvænt

Leiga á kerrum, barnabúnaði og hjólum, akstur til og frá flugvelli með bílstólum.

Sterkari teymi

Vinnuhópar geta unnið saman í nýju umhverfi — fundaraðstaða og sameiginleg vinnurými.

Hvernig það virkar

Finndu, bókaðu, mættu að öllu tilbúnu

Þú velur eign og þjónustupakka í einni beiðni. Við samræmum eiganda og þjónustuaðila — svo þú mætir að vinnuaðstöðu, barnabúnaði, hjólum og mat tilbúnu. Engin skipulagning, engar búðaferðir.

1

Finndu eign

Staðfest vinnuaðstaða á korti — internethraði og aðstaða yfirfarin.

2

Veldu pakka

Einn smellur bætir við réttu þjónustunni fyrir þína ferð.

3

Við samræmum

Eigandi og þjónustuaðilar fá verkin — þú fylgist með á einum stað.

4

Mættu tilbúið

Allt klárt við komu. Skilar búnaði eftir — ekkert að pakka heim.

Dæmi um ferðir

Ein beiðni — heildarupplifun

Fyrir gesti: einn staður fyrir allar beiðnir og þjónustu. Fyrir eigendur: ferðalangar utan háannar með fullbúna upplifun — og enginn hausverkur við að kaupa kerrur og hjól á Spáni sem svo þarf að skilja eftir eða eiga tvöfalt heima.

Fæðingarorlof · 8 vikur

Foreldrar með ungbarn í sólinni

Vinna 10–25% og njóta — restin er fjölskyldutími

  1. Bókun

    Velja eign og pakkann „Með ungbarn" í einni beiðni.

  2. Við samræmum

    Barnabúnaður, ungbarnamatur, kerra, matur og þrif — allt pantað fyrir komu.

  3. Koma

    Mæta að öllu tilbúnu. Engin búð, ekkert vesen með ungbarn í ferðatösku.

  4. 8 vikur

    Létt vinna (10–25%), afgangurinn er sól og samvera.

  5. Brottför

    Skila búnaði eftir — ekkert að pakka, ekkert að henda, engin auka kerra heima.

Ein beiðni leysir allt sem venjulega þarf að kaupa, bera og skilja eftir.

Vinnuhópur · 4 forritarar + fjölskyldur

Fyrirtæki býður teyminu breytt umhverfi

Satellite-skrifstofa með fjölskyldur í eftirdragi

  1. Fyrirtæki bókar

    Vinnuaðstaða og gisting fyrir fjögur teymi með fjölskyldum.

  2. Við samræmum

    Flugvallarakstur með bílstólum, hjól, matur og þrif — fyrir öll í einu.

  3. Koma

    Vinnuaðstaða og fjölskylduaðstaða klár frá fyrsta degi.

  4. Vinnuvika

    Teymið vinnur saman á daginn; fjölskyldur njóta stranda og útiveru.

  5. Ávinningur

    Sterkara teymi, ánægðir starfsmenn og ógleymanleg upplifun — utan háannar.

Eigandi fyllir off-season með hópbókun; fyrirtækið gefur perk sem selur sig sjálft.

Fasteignaeigendur

Ert þú að leigja út eign á Spáni?

Auktu virði eignarinnar með vinnuaðstöðu og fjölskylduvænni þjónustu — og laðaðu að leigutaka í off-season.

Hafa samband

Þjónustuaðilar

Viltu verða þjónustuaðili?

Verkstjórnun, akstur, þrif, vöktun, uppsetning vinnuaðstöðu eða leiðsögn — við leitum stöðugt að góðum samstarfsaðilum.

Hafa samband